Popular Actress

Popularnudeactress En Theclub Myprofile Games Index X Popular Nude Actress Sigga Dögg » Book

Popularnudeactress En Theclub Myprofile Games Index X Popular Nude Actress

Það eru umræður meðal sumra hópa feminista um mikilvægi þess ofangreinda, að vera kynferðislega jákvæð. Þó er jákvæð kannski ekki rétt þýðing hjá mér og ég hugsa að umburðarlyndi ætti betur við.

Góða grein sem útskýrir þetta nánar má finna hér og líka hér.

Ein bekkjarsystir mín barðist mikið fyrir þessu og vitnaði sí og æ í bókina The Ethical Slut sem ég hef skrifað um hér.

Hún vill að við konur notum orð eins og hóra, kunta, pussa, ofl. (sumir myndu setja píka hér líka) í jákvæðri merkingu og hættum að nota þau í neikvæðri því þannig drögum við úr þessu neikvæða gildishlaðna stimpli sem er settur á konur (oft af öðrum konum). Með því að stjórna tungumálinu mætti mögulega draga úr kúgun kvenna, eða hvað?

Afhverju er það slæmt að kona stundi „mikið“ kynlíf? Hvað er mikið?

En þessi pæling minnir mig á umræðufund á Transdögum í HÍ sem ég fór á fyrir nokkrum mánuðum. Davíð Þór Jónsons radísubróðir talaði um hvernig samkynhneigðir menn „föðmuðu“ orðið hommi sem áður var hið mesta skammaryrði og gerðu það að sínu. Tóku „hræðilega“ stimplinn af orðinu og „normalæseruðu“. Þá notaði hann skemmtilega samlíkingu við Harry Potter og Voldemort til að heimfæra þetta enn frekar. Stundum verður óttinn við hlutinn stærri en hluturinn sjálfur!

Þá man ég eftir umfjöllun fjölmiðlana um áhyggjuefni nokkra stúlknavefsíðna sem hétu hórurnar.is og eitthvað þar fram eftir götunum. Voru þær stöllur kynferðislega umbyrðarlyndar og eignuðu sér neikvætt hlaðið orð um konur og reyndu að breyta því eða var þetta bara sniðugt og enginn pæling lá að baki?

Hvort sem svo svarið er þá finnst mér þetta áhugaverð umræða.

Ég vona að píka hætti að verða notað um einhverja stelpu sem er leiðinleg, þá fagna ég frekar notkun á orðinu beygla.

Dæmi svo hver fyrir sig en mér finnst þetta áhugavert og margt og mikið er pælt um notkun tungumálsins.

Ef þú vilt lesa enn meira um þetta þá bendi ég á kynfræðinginn Carol Queen, hlekkur á vefsíðuna hennar má finna til hliðar á þessari síðu.

Sigga Dögg

-sem sér mömmu sína enn taka kipp þegar einhver segir píka-

Mér líkar þessi færsla
Líkar ekki

Comments (0)


Sep 28 2009

Happy Stripper

Category: Book,Media,Mánudagur,WomenSigga Dögg @ 09:00

Ég hef verið að lesa bókina The Happy Stripper: Pleasure and Politics of the New Burlesque eftir Jacki Willson.

Bókin er um sögu burlesque-sins og þar með í raun strípidansins.

Burlesque er oft talið vera allt annar handleggur en strípidans því það er í raun meira„show“ svona eins og Moulin Rouge þar sem ekki er bara strípað heldur líka talað og er það í raun það sem skipti hvað mestu máli í sýningunni, samræður dömunnar við áhorfendur. En núna eru áherslurnar aðrar og eitthvað annað sem hefur orðið að tísku, meðal annars vegna fyrrverandi kærustu Marilyn Manson, Dita Von Teese, sem vakti burlesque aftur til lífsins eftir nokkurra ára hlé.

Þar er glamúr korseletta, rauðra vara og pin-up stúlknanna endurvakin en burlesque er eldra en nútímatískan gefur til kynna.

Burlesque hófst í raun í lok átjándu aldarinnar (1870) en upphafi er oftast kennt við Gypsy Rose Lee frá árinu 1920.

Þarna er sýningin ekki bara um strípið heldur líka um djarfleika samræðanna og ögrun þessarar konu á áhorfendur. Því hefur burlesque oft verið tengt við últra kvenleika og sýningu á gáfaðri og sjálfstæðri konu. En í stað þess að lifa góðu lífi sem list þá hefur burlesque átt sínar góðu stundir og slæmar því það hefur oft verið bannað sökum nektar og hversu ögrandi það er. Sumir feministar hafa verið með og aðrir á móti. Svipað og með strippið í dag. Þannig mætti segja að strípidans sé „útþynnt“ útgáfa af burlesque.

Endilega bættu inn athugasemd hér að neðan ef vilt vita meira um sögu burlesque-sins…

Mér finnst hið „tvöfalda siðgæði“ í kringum stripp vs. burlesque allt hið merkilegasta. Í dag er ekki talið neitt sérlega flott að vera strípidansmey en það er talið flott að vera burlesque strípidansmey. Afhverju ætli það sé?

bPopularnudeactress En Theclub Myprofile Games Index X Popular Nude Actress Sigga Dögg » Bookl g b Actress Actress Nude yPopularnudeactress En Theclub Myprofile Games Index X Popular Nude Actress Sigga Dögg » Bookp Actress Actress c Actress Nude